Starfsmaður á netaverkstæði / Fishing net workshop
Ísfell ehf. · Iceland
Ísfell ehf óskar eftir að ráða til sín lausnamiðaðan og agaðan einstakling í fjölbreytt starf á þjónustustöð fyrirtækisins. Starfið heyrir undir verkstjóra netaverkstæðisins.
Um fullt starf er að ræða og er vinnutími mán. - fim. frá kl. 08:00 - 17:00, og fös. frá kl. 08:00 - 15:00.
Helstu verkefni:
Framleiðsla og þjónusta á veiðarfærum.
Almenn netavinna.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Reynsla og þekking á framleiðslu og þjónustu á netum og veiðarfærum.
Jákvætt viðmót, hæfni í samskiptum og geta til að starfa í hópi.
Samviskusemi, áreiðanleiki og stundvísi.
Enskukunnátta.
Laun eru greidd skv. gildandi kjarasamningi Eflingar eða VM.
Ísfell er leiðandi fyrirtæki í sölu, þjónustu og hönnun á útgerðar-, fiskeldis- og iðnaðarlausnum og rekur 8 þjónustu- og framleiðslueiningar um land allt. Þjónusta fyrirtækisins markast helst af góðu úrvali af gæðavörum, áreiðanleika gagnvart viðskiptavinum og frábærum hópi starfsfólks með víðtæka þekkingu. Nánari upplýsingar er að finna á www.isfell.is.
Áhugasamir vinsamlegast sendið umsókn ásamt ferilskrá á netfangið: hrafnhildur@isfell.is
Umsóknarfrestur er til og með 12. júní 2026.
Ísfell ehf is seeking a solution oriented and disciplined employee for a versatile position in the fishing net workshop.
The position is 100% with work hours Mon - Thu from 08:00 - 17:00 and Fri from 08:00 - 15:00.
The job includes:
- Production and maintenance of fishing gear.
- All general fishing net work and repair.
Requirements:
- Experience with fishing gear and nets, production and maintenance.
- Positive attitude and people skills as well as being able to work in a group.
- Diligence, reliability and punctuality.
- English language skills.
Wages according to collective agreements with Efling or VM union.
Ísfell is a leading company in sales, service, and design of fishing gear. The company works according to the highest standards of quality and personal service. Ísfell’s services are characterized by outstanding employees with extensive experience, specialized knowledge, and business reliability. The company offers wide range of fishing gear. Further information about the company available here: https://isfell.is/en/
Further information and application:hrafnhildur@isfell.is
Last application date is 12. June 2026.